Stígum trylltan dans...
4 years later - London baby!
pjeningasmjeninga
peninga þannig að ég ætla bara að vinna fyrir skuldum á meðan ég
change off plans...
ekki að nenna að blogga en ákvað að segja ykkur frá mínum nýjustu
plönum í lífinu svo ég þurfi ekki alltaf að vera að segja sama
hlutinn aftur og aftur þegar ég hitti fólk. Allavega, staðan er sú
að ég ákvað að hætta í NABA, fattaði þegar ég kom heim að mig
hlakkaði bara til þess að fara aftur til mílanó en mig hlakkaði
ekkert til að byrja aftur í skólanum, svo var líka bara allt of
erfitt að sitja fyrir framan tölvu svona lengi í einu, ég er allt
of mikil people person fyrir það. Svo var ég í allt sumar að velta
því fyrir mér hvað ég ætti að gera í mínum málum og af því ég er
eins og ég er þá fresta ég alltaf öllu og loksins þegar ég
drattaðist til að ákveða að ég vildi hætta í skólanum, þá var orðið
of seint að sækja um aðra skóla. en jæja, eftir mikla umhugsun og
spjall við vini og vandamenn þá ákvað ég að mig langaði í
stílistann, hafði reyndar langað það soldið lengi og oft verið bent
á það nám en ég einhvern veginn leit aldrei á það sem einhverja
menntun, æ þið vitið...Þannig leit byrjaði að skóla í mílanó sem
kenndi það og sú leit er loksins búin að bera árangur því ég er
búin að finna líka þetta spennandi nám, rosa fjölbreytt og í mílanó
eins og ég vildi. núna er maður þá bara kominn aftur í gamla góða
body shop og verður þar, í kringlunni þeas, þartil lok næsta sumars
þegar haldið verður aftur út á leið, þeas ef maður kemst í skólann
mánudaginn til að sækja dót og fá sér mojito með henni hjördísi
sinni, kannski maður kíki í búðir, hehe, vissi ekki að það væri
hægt að sakna þeirra...anywho, ef einhver hefur áhuga þá er linkur
http://www.istitutomarangoni.it/
bla
upptekin af lífinu síðan ég kom heim. er að vinna á fullu alla daga
þess á milli sem ég er busy with my peeps, úje. anywho, er komin
með myspace og hef eiginlega voða lítið að blogga um þessa
dagana...held ég fari bara í pásu þangað til að ég fer aftur út
nema eitthvað spennandi gerist...en kíkiði á
www.myspace.com/annadoraa. until next time8)
Good times man good times
heimsókn og við skemmtum okkur hér og þar, skelltum okkur í sólbað
á Gardavatn og kíkt var á hjólabát og sötruðum hvítvín á
ströndinni. Síðan var farið á Sigurrósar tónleika í Ferrara sem
voru rosa flottir, síðan var fagnað mögnuðum sigri ítala sem ég var
auðvita mjög ánægð með. Allir trylltust, blys og læti, fólk
hangandi í umferðarljósum, útúr bílum eða ofanáþeim, allt crazy!!
Síðan er maður bara búin að vera að pakka og henda drasli og svona,
það varð nú ekkert úr mission tan því það er bara þrumuveður þannig
En Vá ég gleymdi næstum, fyrir ykkur sem eruð grey's anatomy
aðdáendur ætla ég að gera brjáluð úr afbrýðisemi! Í gærkvöldi voru
meredith, george, bailey, addison, richard og george hérna að tala
við áðdáendur og svara spurningum og þannig í pínulitlum bíósal, og
auðvitað var mín á staðnum. Svo löbbum við út en á vitlausum stað
og ég labba næstum á einhvern gaur sem sat á gólfinu, svo sá ég að
það var alex!! ég varð nú frekar sátt þar sem hann er frekar hot,
hehe. Svo stóð ég bara á gólfinu þegar allir komu labbandi út og
framhjá mér, omg hvað ég er svöl, eða mér finnst það allavega. En
jæja, svo kemur maður bara heim eftir 2 daga og verður á klakanum í
Sumarfrí
ágætlega held ég en núna bíða manns þrif og pökkun en fyrst ætlar
maður að skemmta sér og ná sér í smá sól, þeas. ef maður deyr ekki
úr hita. en jæja, nenni ekki að hanga inni, ætla að hoppa í sturtu
Update
5. Ströndin sem á að vera hérna rétt hjá mér er ekki ennþá búin að
6. 11. júlí er fyrsti vinnudagurinn minn og þá ætla ég sko að fá
lærasviti
klukkan 9 um kvöld og úti er 32 stiga hiti, ekki að fíla það. Svo
fer maður út að labba og hvað gerist?? lærasviti, já þetta er ekki
skemmtilegt. En við lærasvita eru til 2 ráð, þú getur annaðhvort
grennt þig þannig að núningurinn sé minni eða þá að þú kaupir
þegar maður þarf að vera í bikin, þá þarf maður bara að þola þetta,
slurp slurp slurp, oj barasta. En jæja, planið er að kaupa sér
buxur þarsem matur er einfaldlega of góður til að minnka þá neyslu.
stresspúkinn
það er bara frekar mikið að gera í skólanum þessa dagana og á eftir
að verða 10x meira. Skólinn er loksins búinn, eða þeas. kennslan er
búin, núna eru 2 vikur sem við höfum til að gera verkefnin okkar
sem eru sko ekki fá og svo verða 2 vikur af prófum og verk.skilum.
Annars er bara gott að frétta af manni, ég er að reyna að láta
stressið ekki alveg fara með mig og það gengur svona misvel,
kannski maður fari að drekka eitthvað róandi te, einhverjar
uppástungur?? En já ég náði aldeilis góðu tilboði hjá icelandair um
daginn þannig að ég er búin að bóka flug heim í sumar, kem 9.júlí
um kvöldið og ég borga bara 10.300 fyrir flug héðan frá mílanó til
íslands, magnaður andskoti;) Já það verður gott að taka sér smá
pásu frá öllu áður en maður kemur heim og fer að vinna, skella sér
í sigur rósa tónleika og kannski ná sér í smá brúnku, við sjáum
til...En ég mun ekki blogga mikið á næstunni, kannski bara læt vita
af mér og svona, annars sé ég ykkur bara eftir 1 mánuð og 8 daga
hiti ekki alltaf góður!
má hreyfa sig því þá byrjar maður að svitna. Þessi hiti ruglar allt
kerfið mitt því eins og flestir vita að þá er hún Anna Dóra ekki
morgunhressasta manneskja í heimi og því fer ég alltaf í sturtu á
kvöldin svona til að geta sofið lengur á morgnana, en nei... núna
er það úr sögunni því maður vaknar hálfklístraður á morgnana, oj,
og já mæli ekki með því að vera með leðursófa...anyways, nú er bara
vika eftir af skólanum og svo tekur við svefnlausi tíminn. svo
komst ég ekki í mikilvægan tíma í gær því það var helvítis verkfall
þannig að ég var föst heima, úff vona að maður fái gilda fjarvist í
svona rugli. vá hvað þessi færsla var leiðinleg...bæ
hiti og vitleysa
lasin...er með veikindi sem kallast sófasýki og kann ég eigi ráð
við því. Sumarið er sko greinilega komið á ítalíu því maður lá í
garðinum um helgina í 30 stiga hita og dauðalogni og svitnaði, ekki
gott, en samt eiginlega, hehe. Það var íslendingapartý um helgina
og jesús góður þvílíkt stuð sem var á fólkinu, ég held ég láti
myndirnar bara tala sínu máli en eitthvað var um fimleikaæfingar og
fíflari og hinir og þessir vöknuðu með dularfulla marbletti á
fótunum og harðsperrur, isss. Annars er lífið bara notalegt þessa
dagana, gott veður og sonna. En það er verst hvað maður verður
miklu þreyttari í svona hita og raka, það verður allt pínu
erfiðara...annars eru bara tæpar 2 vikur eftir af skólanum og svo
eru bara próf og verkefni allan júní mánuð, sjitt, wish me luck! En
það er nú ekki laust við smá spennu að koma heim í sumar því þá
verða sko rúmir 6 mánuðir síðan ansí var seinast á klakanum, eða
ætti ég að segja sólareyjunni? Núna verður bara sett í 6. gír og
reynt að halda sig inni og læra og rokka þessi próf og sóla sig
kannski smá svona inn á milli, hehe. Annan out
og action!
lélegur bloggari en ég er bara allt of löt fyrir þetta. En jæja,
hvað er búið að gerast síðan seinast?? Lífið hefur nú bara gengið
sinn vanagang hér í stórborginni, skóli, djamm og garðurinn. Á
laugardaginn var partý hjá mörtu með hippaþema og mín nottla þurfti
að vera með í því þannig að sett var krulluð í hárið og síðan
djammað með blómakrans, algjör blómarós;) Síðan þegar haldið var
heim á leið ákváðum við 3 að vera samferða í leigubíl,
Arvid(strákur úr hjördísar skóla) á heima í mjög vafasamri götu og
mér leist nú bara ekkert á blikuna þegar ég sá að allar þjófavarnir
í götunni voru komnar í gang á bílunum...hvað var í gangi?? Þá sáum
við hóp að strákum sem voru að ræna þá alla og haldiði ekki að einn
þeirra hafi ekki verið með byssu! mér leist nú ekki á blikuna og ég
bað driverinn vinsamlegast um að drífa sig í burtu sem og hann
gerði þó á sínum hraða. Svo var haldið heim til mín og það er nú
gaman að segja frá því að á leiðinni heim til mín frá
lestarstöðinni hefuru þetta líka fína úrval af mellum. Mér
persónulega finnst mjög gaman af þeim því ég hef komið mér upp
litlum leik til að mér leiðist ekki í leigubílum og hann er þannig
að þú átt að giska á hvaða mellur eru karlar og hvaða eru konur, og
ég skal segja þér það að málið er nú ekki alltaf einfalt. við sáum
til dæmis eina sem var sko kall en samt með boobies og eitthvað
skraut sem hékk á þeim og svo bara í streng, en karlmaður samt sem
áður. Hjördísi fannst þetta æði þar sem hún hafði bara 1x séð mellu
áður og hefur driverinn eflaust haldið að við værum einhverjir
perrar því við lágum með andlitin við rúðurnar og bentum. Svo var
komið heim til mín og þá ákvað driverinn að vera líka þetta
leiðinlegur, hann ætlaði sko að henda hjördísi útúr bílnum því ég
gleymdi að segja honum að hún héldi áfram leið sinni og hann
heimtaði bara að við myndum bara hringja á nýjan bíl! ég hélt nú
ekki og dró upp nokkur vel valin orð, svo sagði hjördís honum bara
að þegja og keyra sig heim og þannig var málið dautt, já hann vissi
sko greinilega ekki að það veður enginn yfir íslenska kvenmenn og
hananú! Anyways, ætla að skella inn myndum úr partýinu snöggvast,
p.s. ég er sko búin að kaupa mér miða á sigurrósar tónleika sem
verða haldnir í einhverjum kastala 2 tíma frá mílanó,
sælt veri fólkið
með gesti hjá sér í heimsókn og þannig. Og eins og gengur og gerist
með litla ísland að þá auðvitað könnuðust flestir við alla. Þessi
hópur náði líka þetta rosa vel saman þannig að eytt var öllum tíma
saman, jafnt dag sem dimma nótt, vá voða skáldlegt eitthvað,
anywho, þessi vika samanstóð af sól, garðaleti, bjórdrykku, partýum
og öðru skralli sem verður ekki útlistað hér en sjaldan hefur maður
hlegið jafn mikið:) Nú er bara að einbeita sér að skólanum og bíða
eftir endurfundum sem eiga að vera í sumar og verður það eflaust
skrautlegt. En ég er búin að setja inn fullt af myndum sem eflaust
farin í sólbað;)
vel og tókst það auðveldlega þar sem hitinn var um 25, langaði bara
að deila því með ykkur að það er sko heitara í dag, hahaha og við
erum farnar aftur í garðinn see ya
nýjar myndir!!