Stígum trylltan dans...
Ýmislegt
11.05.2010 14:03:23 / AnnaDora

4 years later - London baby!

jaeja, skvisan komin til London til ad na ser i eitthvad mega spennandi jobb. Komin med geggjada ibud sem verdur flutt inni 20. mai en thangad til er svosem ekki mikid ad gerast hja mer. Er buin ad fara i eitt atvinnuvidtal sem mer langar rosalega mikid ad fa! fae svar liklegast eftir helgi...er ad saekja um onnur storf i millitidinni.
Verdid ad afsaka stafina en eg er ekki i tolvunni minni...

Allavega, laet vita um leid og eitthvad gerist:)

adios!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 21:44:06 / AnnaDora

pjeningasmjeninga

komin heim for good, allavega í bili. maður getur lítið gert án peninga þannig að ég ætla bara að vinna fyrir skuldum á meðan ég ákveð hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór...

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 21:06:47 / AnnaDora

change off plans...

er ekki kominn tími til að láta aðeins af sér heyra...Er eiginlega ekki að nenna að blogga en ákvað að segja ykkur frá mínum nýjustu plönum í lífinu svo ég þurfi ekki alltaf að vera að segja sama hlutinn aftur og aftur þegar ég hitti fólk. Allavega, staðan er sú að ég ákvað að hætta í NABA, fattaði þegar ég kom heim að mig hlakkaði bara til þess að fara aftur til mílanó en mig hlakkaði ekkert til að byrja aftur í skólanum, svo var líka bara allt of erfitt að sitja fyrir framan tölvu svona lengi í einu, ég er allt of mikil people person fyrir það. Svo var ég í allt sumar að velta því fyrir mér hvað ég ætti að gera í mínum málum og af því ég er eins og ég er þá fresta ég alltaf öllu og loksins þegar ég drattaðist til að ákveða að ég vildi hætta í skólanum, þá var orðið of seint að sækja um aðra skóla. en jæja, eftir mikla umhugsun og spjall við vini og vandamenn þá ákvað ég að mig langaði í stílistann, hafði reyndar langað það soldið lengi og oft verið bent á það nám en ég einhvern veginn leit aldrei á það sem einhverja menntun, æ þið vitið...Þannig leit byrjaði að skóla í mílanó sem kenndi það og sú leit er loksins búin að bera árangur því ég er búin að finna líka þetta spennandi nám, rosa fjölbreytt og í mílanó eins og ég vildi. núna er maður þá bara kominn aftur í gamla góða body shop og verður þar, í kringlunni þeas, þartil lok næsta sumars þegar haldið verður aftur út á leið, þeas ef maður kemst í skólann góða.  annars er maður að fara til ítalíu í viku núna á mánudaginn til að sækja dót og fá sér mojito með henni hjördísi sinni, kannski maður kíki í búðir, hehe, vissi ekki að það væri hægt að sakna þeirra...anywho, ef einhver hefur áhuga þá er linkur á skólann  sem mig langar í hér: http://www.istitutomarangoni.it/

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 22:38:44 / AnnaDora

bla

já ég er á lífi og í fullu fjöri, er bara búin að vera frekar upptekin af lífinu síðan ég kom heim. er að vinna á fullu alla daga þess á milli sem ég er busy with my peeps, úje. anywho, er komin með myspace og hef eiginlega voða lítið að blogga um þessa dagana...held ég fari bara í pásu þangað til að ég fer aftur út nema eitthvað spennandi gerist...en kíkiði á www.myspace.com/annadoraa. until next time8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 14:55:52 / AnnaDora

Good times man good times

Vikan sem leið er búin að vera geggjuð. Vinkonur Hjördísar komu í heimsókn og við skemmtum okkur hér og þar, skelltum okkur í sólbað á Gardavatn og kíkt var á hjólabát og sötruðum hvítvín á ströndinni. Síðan var farið á Sigurrósar tónleika í Ferrara sem voru rosa flottir, síðan var fagnað mögnuðum sigri ítala sem ég var auðvita mjög ánægð með. Allir trylltust, blys og læti, fólk hangandi í umferðarljósum, útúr bílum eða ofanáþeim, allt crazy!! Síðan er maður bara búin að vera að pakka og henda drasli og svona, það varð nú ekkert úr mission tan því það er bara þrumuveður þannig maður kemur næstum hvítur heim:(
En Vá ég gleymdi næstum, fyrir ykkur sem eruð grey's anatomy aðdáendur ætla ég að gera brjáluð úr afbrýðisemi! Í gærkvöldi voru meredith, george, bailey, addison, richard og george hérna að tala við áðdáendur og svara spurningum og þannig í pínulitlum bíósal, og auðvitað var mín á staðnum. Svo löbbum við út en á vitlausum stað og ég labba næstum á einhvern gaur sem sat á gólfinu, svo sá ég að það var alex!! ég varð nú frekar sátt þar sem hann er frekar hot, hehe. Svo stóð ég bara á gólfinu þegar allir komu labbandi út og framhjá mér, omg hvað ég er svöl, eða mér finnst það allavega. En jæja, svo kemur maður bara heim eftir 2 daga og verður á klakanum í tæpa 4 mánuði, until then!

» 9 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 11:30:33 / AnnaDora

Sumarfrí

jibbí libbí, loksins er maður búin í prófum! Þau gengu bara ágætlega held ég en núna bíða manns þrif og pökkun en fyrst ætlar maður að skemmta sér og ná sér í smá sól, þeas. ef maður deyr ekki úr hita. en jæja, nenni ekki að hanga inni, ætla að hoppa í sturtu og skella mér svo í garðinn og fá mér einn drykk eða svo:lol:
bæjó mæjó

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 14:14:46 / AnnaDora

Update

1. hitabylgja...35 í forsælu, allt of heitt!
2. farin að hlakka rosa til að koma heim
3. þarf að kaupa mér viftu
4. bara 3 próf eftir
5. Ströndin sem á að vera hérna rétt hjá mér er ekki ennþá búin að opna! :frown:
6. 11. júlí er fyrsti vinnudagurinn minn og þá ætla ég sko að fá mér subway

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 20:56:49 / AnnaDora

lærasviti

já lærasviti er skemmtilegt orð yfir leiðinlegan hlut. núna er klukkan 9 um kvöld og úti er 32 stiga hiti, ekki að fíla það. Svo fer maður út að labba og hvað gerist?? lærasviti, já þetta er ekki skemmtilegt. En við lærasvita eru til 2 ráð, þú getur annaðhvort grennt þig þannig að núningurinn sé minni eða þá að þú kaupir þér  léttar sumarbuxur í staðinn fyrir pils. einn galli þó er þegar maður þarf að vera í bikin, þá þarf maður bara að þola þetta, slurp slurp slurp, oj barasta. En jæja, planið er að kaupa sér buxur þarsem matur er einfaldlega of góður til að minnka þá neyslu.

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 01:22:39 / AnnaDora

stresspúkinn

já ég vildi bara láta vita að ég er á lífi, afsakið lélegt blogg en það er bara frekar mikið að gera í skólanum þessa dagana og á eftir að verða 10x meira. Skólinn er loksins búinn, eða þeas. kennslan er búin, núna eru 2 vikur sem við höfum til að gera verkefnin okkar sem eru sko ekki fá og svo verða 2 vikur af prófum og verk.skilum. Annars er bara gott að frétta af manni, ég er að reyna að láta stressið ekki alveg fara með mig og það gengur svona misvel, kannski maður fari að drekka eitthvað róandi te, einhverjar uppástungur?? En já ég náði aldeilis góðu tilboði hjá icelandair um daginn þannig að ég er búin að bóka flug heim í sumar, kem 9.júlí um kvöldið og ég borga bara 10.300 fyrir flug héðan frá mílanó til íslands, magnaður andskoti;) Já það verður gott að taka sér smá pásu frá öllu áður en maður kemur heim og fer að vinna, skella sér í sigur rósa tónleika og kannski ná sér í smá brúnku, við sjáum til...En ég mun ekki blogga mikið á næstunni, kannski bara læt vita af mér og svona, annars sé ég ykkur bara eftir 1 mánuð og 8 daga svona sirka
bæ á meðan

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 11:50:52 / AnnaDora

hiti ekki alltaf góður!

já nú er kominn sá tími árs að ansi oft þarf að fara í sturtu, ekki má hreyfa sig því þá byrjar maður að svitna. Þessi hiti ruglar allt kerfið mitt því eins og flestir vita að þá er hún Anna Dóra ekki morgunhressasta manneskja í heimi og því fer ég alltaf í sturtu á kvöldin svona til að geta sofið lengur á morgnana, en nei... núna er það úr sögunni því maður vaknar hálfklístraður á morgnana, oj, og já mæli ekki með því að vera með leðursófa...anyways, nú er bara vika eftir af skólanum og svo tekur við svefnlausi tíminn. svo komst ég ekki í mikilvægan tíma í gær því það var helvítis verkfall þannig að ég var föst heima, úff vona að maður fái gilda fjarvist í svona rugli. vá hvað þessi færsla var leiðinleg...bæ

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 16:13:37 / AnnaDora

hiti og vitleysa

ég er nú ekki í neinu sérstöku bloggstuði í dag því ég er lasin...er með veikindi sem kallast sófasýki og kann ég eigi ráð við því. Sumarið er sko greinilega komið á ítalíu því maður lá í garðinum um helgina í 30 stiga hita og dauðalogni og svitnaði, ekki gott, en samt eiginlega, hehe. Það var íslendingapartý um helgina og jesús góður þvílíkt stuð sem var á fólkinu, ég held ég láti myndirnar bara tala sínu máli en eitthvað var um fimleikaæfingar og fíflari og hinir og þessir vöknuðu með dularfulla marbletti á fótunum og harðsperrur, isss. Annars er lífið bara notalegt þessa dagana, gott veður og sonna. En það er verst hvað maður verður miklu þreyttari í svona hita og raka, það verður allt pínu erfiðara...annars eru bara tæpar 2 vikur eftir af skólanum og svo eru bara próf og verkefni allan júní mánuð, sjitt, wish me luck! En það er nú ekki laust við smá spennu að koma heim í sumar því þá verða sko rúmir 6 mánuðir síðan ansí var seinast á klakanum, eða ætti ég að segja sólareyjunni? Núna verður bara sett í 6. gír og reynt að halda sig inni og læra og rokka þessi próf og sóla sig kannski smá svona inn á milli, hehe. Annan out

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 20:26:17 / AnnaDora

og action!

ég ætla nú að byrja á því að biðjast afsökunar á því hvað ég er lélegur bloggari en ég er bara allt of löt fyrir þetta. En jæja, hvað er búið að gerast síðan seinast?? Lífið hefur nú bara gengið sinn vanagang hér í stórborginni, skóli, djamm og garðurinn. Á laugardaginn var partý hjá mörtu með hippaþema og mín nottla þurfti að vera með í því þannig að sett var krulluð í hárið og síðan djammað með blómakrans, algjör blómarós;) Síðan þegar haldið var heim á leið ákváðum við 3 að vera samferða í leigubíl, Arvid(strákur úr hjördísar skóla) á heima í mjög vafasamri götu og mér leist nú bara ekkert á blikuna þegar ég sá að allar þjófavarnir í götunni voru komnar í gang á bílunum...hvað var í gangi?? Þá sáum við hóp að strákum sem voru að ræna þá alla og haldiði ekki að einn þeirra hafi ekki verið með byssu! mér leist nú ekki á blikuna og ég bað driverinn vinsamlegast um að drífa sig í burtu sem og hann gerði þó á sínum hraða. Svo var haldið heim til mín og það er nú gaman að segja frá því að á leiðinni heim til mín frá lestarstöðinni hefuru þetta líka fína úrval af mellum. Mér persónulega finnst mjög gaman af þeim því ég hef komið mér upp litlum leik til að mér leiðist ekki í leigubílum og hann er þannig að þú átt að giska á hvaða mellur eru karlar og hvaða eru konur, og ég skal segja þér það að málið er nú ekki alltaf einfalt. við sáum til dæmis eina sem var sko kall en samt með boobies og eitthvað skraut sem hékk á þeim og svo bara í streng, en karlmaður samt sem áður. Hjördísi fannst þetta æði þar sem hún hafði bara 1x séð mellu áður og hefur driverinn eflaust haldið að við værum einhverjir perrar því við lágum með andlitin við rúðurnar og bentum. Svo var komið heim til mín og þá ákvað driverinn að vera líka þetta leiðinlegur, hann ætlaði sko að henda hjördísi útúr bílnum því ég gleymdi að segja honum að hún héldi áfram leið sinni og hann heimtaði bara að við myndum bara hringja á nýjan bíl! ég hélt nú ekki og dró upp nokkur vel valin orð, svo sagði hjördís honum bara að þegja og keyra sig heim og þannig var málið dautt, já hann vissi sko greinilega ekki að það veður enginn yfir íslenska kvenmenn og hananú! Anyways, ætla að skella inn myndum úr partýinu snöggvast, leiter.
p.s. ég er sko búin að kaupa mér miða á sigurrósar tónleika sem verða haldnir í einhverjum kastala 2 tíma frá mílanó, magnað:haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 16:43:36 / AnnaDora

sælt veri fólkið

góð vika var að líða, það fjölgaði íslendingum hér því margir voru með gesti hjá sér í heimsókn og þannig. Og eins og gengur og gerist með litla ísland að þá auðvitað könnuðust flestir við alla. Þessi hópur náði líka þetta rosa vel saman þannig að eytt var öllum tíma saman, jafnt dag sem dimma nótt, vá voða skáldlegt eitthvað, hehe.
anywho, þessi vika samanstóð af sól, garðaleti, bjórdrykku, partýum og öðru skralli sem verður ekki útlistað hér en sjaldan hefur maður hlegið jafn mikið:) Nú er bara að einbeita sér að skólanum og bíða eftir endurfundum sem eiga að vera í sumar og verður það eflaust skrautlegt. En ég er búin að setja inn fullt af myndum sem eflaust eru skrautlegar en það er bara gaman, eþaggi
leiter Annan

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 10:36:28 / AnnaDora

farin í sólbað;)

vorum nokkur í garðinum í gær að sóla okkur og bara láta okkur líða vel og tókst það auðveldlega þar sem hitinn var um 25, langaði bara að deila því með ykkur að það er sko heitara í dag, hahaha og við erum farnar aftur í garðinn see ya

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 11:43:56 / AnnaDora

nýjar myndir!!

já nú get ég glatt litlu hjörtun ykkar því það er sko komið fullt af nýjum myndum núna, jey
ble

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4